Atlantic Superconnection segist nú bíða samþykkis stjórnvalda í Bretlandi og á Íslandi, ásamt ákvörðun um hvernig raforkuþörf sæstrengsins yrði mætt, og staðfestingu frá Landsneti um styrkingu íslenska raforkunetsins í tæka tíð. Að því öllu fengnu geti fyrirtækið hafist handa við framkvæmdir á næsta ári, 2019. Systurfélagið Disruptive Capital Finance muni, með aðkomu banka, lífeyrissjóða, lánastofnana og fjárfesta, leiða fjármögnun verkefnisins.
Árið 2019 myndi þá fara af stað framkvæmdaáætlun, samkvæmt vefsíðu fyrirtækisins, til ársins 2025, sem hefst á að reist yrði verksmiðjan þar sem sæstrengurinn yrði framleiddur. Árið 2025 væri framkvæmdinni lokið og afhending raforku um sæstrenginn myndi hefjast.
Nánar á vefsíðu Kvennablaðsins
Sendiherra ESB á Íslandi skrifar grein í Morgunblaðið
Morgunblaðið birti 15. nóvember 2018 grein eftir Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi en með greininni vill hann „reyna að leiðrétta ýkjurnar og slá á múgæsinginn.“ Hann sakar andstæðinga orkupakkans meðal annars um að „byggja á dylgjum“ og að umræðan sé „þvæld með handahófskenndum staðhæfingum og goðsögnum sem ekki eigi við rök að styðjast“.
Lesa áfram „Sendiherra ESB á Íslandi skrifar grein í Morgunblaðið“Ráðherrar fastir í sama pakkanum
Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins
Pakkinn er að sjálfsögðu 3. orkupakki Evrópusambandsins en ráðherrarnir eru ekki bara núverandi ráðherrar því fyrrverandi ráðherrar virðast komnir í sama pakkann. Þeirra a meðal er Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins og núverandi formaður starfshóps ríkisstjórnarinnar um EES-samninginn.
Lesa áfram „Ráðherrar fastir í sama pakkanum“Tilfinningagreind og orkupakkinn
Eftir Elías B Elíasson verkfræðing
Iðnaðarráðherra tjáði flokksystkinum sínum um daginn í tengslum við orkupakkamálið, að tilfinningar fólks bæri að virða. Þarna dró Þórdís Kolbrún fram skýrt dæmi um hvers vegna stjórnum farnast oft betur með konur innanborðs og mæli hún kvenna heilust. Á herðum venjulegs vel menntaðs og víðsýns fólks með góða tilfinningagreind hvílir lýðræði og sjálfstæði þjóðarinnar og það ber að virða.
Lesa áfram „Tilfinningagreind og orkupakkinn“Að ýta vanda orkupakkans á undan sér eykur vandann
Eftir Elías Elíasson
Greinin birtist í Morgunblaðinu 10. nóvember 2018
Það heyrist ítrekað frá ráðamönnum þjóðarinnar að best sé að samþykkja þriðja orkupakkann eins og hann er, en fást við sæstrenginn þegar það kemur upp. Það mundi setja EES-samninginn í uppnám að fella pakkann núna, segja menn. Sú hugmynd heyrðist frá formanni Sjálfstæðisflokksins að setja lög sem krefjast samþykkis Alþingis fyrir sæstreng og láta síðan reyna á þau þegar þar að kemur. Þessar hugmyndir byggjast á vanþekkingu og mér er spurn, hver ber ábyrgð á því að ráðamenn fái allar þær upplýsingar sem þarf til að móta afstöðu í þessu stóra máli.
Lesa áfram „Að ýta vanda orkupakkans á undan sér eykur vandann“