Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokksins var gestur Víglínunnar á Stöð2 þann 24. nóvember 2018. Sigurður Ingi svaraði meðal annars spurningum um nýlega ályktun Framsóknarflokksins gegn orkupakkanum. Sigurður Ingi sagðist meðal annars taka undir það sjónarmið Jóns Baldvins Hannibalssonar f.v. ráðherra að ekki væri ástæða til að Ísland ætti taka upp regluverk ESB í orkumálum þegar landið er ótengt orkumarkaði ESB. Sigurður taldi skynsamlegt að Ísland fengi undanþágu frá orkupakkanum og orkupökkum framtíðarinnar og sagðist ekki hafa áhyggjur af EES samningnum af þeim sökum.
Styrmir Gunnarsson bloggar: „Orkupakki 3: Af hverju þessi þögn um samþykkt miðstjórnarfundar Framsóknar?
Styrmir bloggar þriðjudaginn, 20. nóvember 2018:
Það er forvitnilegt að fylgjast með þeirri þögn, sem ríkt hefur að verulegu leyti um samþykkt miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins um helgina um að hafna beri innleiðingu orkupakka 3 frá ESB.
Þegar þetta er skrifað upp úr hádegi á þriðjudegi hefur þess ekki orðið vart Gera fjölmiðlar sé ekki grein fyrir mikilvægi þessarar samþykktar?
Hér er hægt að lesa bloggfærslu Styrmis
RÚV: Hvað er þriðji orkupakkinn?
Þriðji orkupakkinn var afgreiddur úr Evrópuþinginu árið 2009 en með honum er frjáls samkeppni tryggð á nýjum innri markaði Evrópusambandsins með raforku og gas, þvert á landamæri aðildarríkjanna.
Markmiðum reglugerðarinnar er skipt í fimm þætti:
a) Slíta í sundur rekstur orkuframleiðenda og dreifikerfa
b) Styrkja sjálfstæði eftirlitsaðila Stofnun ACER, yfirþjóðlegrar eftirlitsstofnunar með úrskurðarvald í ágreiningsmálum milli ríkja
c) Samstarf þvert á landamæri um dreifikerfi og stofnun samstarfsvettvangs fyrir rekstraraðila dreifikerfa
d) Aukið gagnsæi á neytendamarkaði
Lesa áfram „RÚV: Hvað er þriðji orkupakkinn?“
Jón Bjarnason f.v. ráðherra bloggar: „Framsókn hafnar Orkupakka ESB“
„Mikil andstaða er gagnvart innleiðingu Orkupakka ESB innan Sjálfstæðisflokksins og Miðflokkurinn er algjörlega andvígur. Sama er að segja um Flokk fólksins. Vafalaust sjá auðmenn og ýmis fyrirtæki í bísness mikla gróðavon að fá að komast inn í orkusölu og orkuviðskipti til Evrópu. Og einhverjir eru tilbúnir að ganga erinda þeirra. Það er ekki nýtt”, segir Jón Bjarnason m.a. í bloggfærslu sinni. „VG hlýtur samkvæmt grunnstefnu sinni að leggjast algjörlega gegn samþykkt og innleiðingu Orkupakkans”
Hér er hægt að lesa bloggfærslu Jóns Bjarnasonar
Ofurtenging yfir Atlantshaf krefst viðamikilla virkjana
Kvennablaðið birti 19. nóvember 2018 fréttaskýringu þar sem er meðal annars fjallað um áform breska félagsins Atlantic Superconnection um raforkusæstrengs frá Íslandi til Bretlands. Meðal annars segir frá því að fyrirtækið hafi árið 2015 fengið leyfi Orkustofnunar til að gera rannsóknir á hafsbotni með slíkan streng í huga. Frést hafi í haust að svissneska félagið DC Renewable Energy sem er tengt Atlantic Superconnection, eigi nú 13% hlut í HS Orku. Sjá nánar í frétt Kvennablaðsins.