Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður óskar eftir skýrslu um fjórða orkupakka ESB

Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður

Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður óskar eftir skýrslu um fjórða orkupakkannGunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fv. utanríkisráðherra, hefur óskað eftir því í utanríkismálanefnd Alþingis, að unnin verði skýrsla eða greinargerð um áhrif fjórða orkupakkans. Sem kunnugt er, stendur til að afgreiða innleiðingu þriðja orkupakkans nú í lok mánaðarins.

Í erindi sínu til utanríkismálanefndar segir Gunnar Bragi meðal annars:
„Hér með óska ég eftir því að Alþingi eða Utanríkisráðuneytið láti vinna greinargerð/skýrslu um neðangreint. Óska ég þess jafnframt að Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson hafi aðkomu að verkefninu.

Óskað er eftir greinargerð/skýrslu um innihald og réttaráhrif orkupakka 4. Þar verði m.a. fjallað um breytingar á íslenskum lögum og reglum sem gera þarf, gerð grein fyrir áhrifum á íslensk orkufyrirtæki og íslenskan orkumarkað.

Þá verði sérstaklega gerð grein fyrir þróun laga og reglna (evrópskra og íslenskra) sem verða á reglum orkupakka 3 við innleiðingu á 4. orkupakka. Hvað breytist?

Hvaða breytingar verða á starfs- og valdsviði ACER og áhrif þeirra breytinga gagnvart Íslandi.

Jafnframt verði gerð grein fyrir helstu álitaefnum sem komið hafa fram innan EES svæðisins vegna orkupakka 4 sem og hvort íslensk stjórnvöld telji þörf á undanþágum frá pakkanum eða hluta hans og þá hvaða hluta og hvaða undanþágum vænst er að ná.

Gerð verði grein fyrir þróun evrópska orkumarkaðarins og markmiða Evrópusambandsins varðandi hinn sameignlega orkumarkað.

Er þess óskað að greinargerð / skýrsla þessi verði tekin fyrir á fundum utanríkismálanefndar í ágústmánuði. Þess skal jafnframt getið að óskað verður eftir gestum á fundi nefndarinnar til að ræða orkupakkana. Þá er ekki útilokað að óskað verði eftir frekari upplýsingum, greinargerðum og/eða skýrslum.“

Nánar á vef Viljans þ. 7. ágúst 2019

Deila þessu: