Sagt er frá því í frétt mbl.is 30. maí 2012 að Charles Hendry orkumálaráðherra Breta sé á leið til Íslands. Hann muni ásamt Oddnýju G Harðardóttur Iðnaðarráðherra skrifa undir viljayfirlýsingu landanna um orkumál og mögulega lagningu sæstrengs milli landanna. Fréttin á vef mbl.is
Sagt er frá því í frétt mbl.is 31. maí 2012 að Framsýn stéttarfélag þingeyinga hafi á aðalfundi ályktað að hafna alfarið hugmyndum Landsvirkjunar og stjórnvalda um að flytja út orku með sæstreng til Evrópu. „Komi til þess að náttúruauðlindir á Íslandi verði virkjaðar til atvinnusköpunar í Evrópu mun það án efa draga úr hagvexti og atvinnuuppbygginu á Íslandi með hækkandi raforkuverði til fyrirtækja og heimilanna í landinu. Í því mikla endurreisnarstarfi sem framundan er eftir hrunið er ábyrgðarhluti að ætla að mæta því með því að selja orkuna til útlanda. Því mótmælir aðalfundur Framsýnar – stéttarfélags.“ Frétt mbl.is
Í frétt mbl.is 31. maí 2012 er haft eftir Charles Hendry, orkumálaráðherra Breta sem hélt erindi á ráðstefnu Arion um orkumál að sæstrengur yrði fjármagnaður af einkaaðilum. Nánar í frétt mbl.is
Valdimar K. Jónsson doktor í verkfræði ritaði grein í Morgunblaðið 20. apríl 2012 og ítrekaði þar spurningu sem hann setti fram á nýloknum ársfundi Landsvirkjunar þar sem sæstrengur var til umræðu. „Maður hefur velt því fyrir sér tíðni bilanna fyrir sæstrengi og litið til reynslu Norðmanna á sæstreng til Hollands, NorNed. Hann er 580 km langur og liggur mest á 410 metra dýpi. Þeirra bilunarsaga liggur fyrir og er talsvert meiri en gert var ráð fyrir í upphafi svo þeir eru farnir að tala um varasæstreng. Miklu alvarlegra væri ef IceScot-strengur bilaði á 1.000 metra dýpi. Mundi ekki í því tilfelli öll hagkvæmni rjúka út í veður og vind?“ Fréttin á mbl.is
Sagt er frá því mbl.is 12. apríl 2012 að Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra hyggist skipa starfshóp til að kanna hagkvæmni sæstrengs til Evrópu. Sjá nánar á mbl.is