Orkuauðlind Íslands færð undir endanlegt boðvald ESB með þriðja orkupakkanum

Reykjavíkurbréf Mbl um innleiðingu þriðja orkupakka ESB:
„Það eru aðeins ein rök færð fram fyrir því að Alþingi verði að samþykkja orkupakkann þriðja. Aðeins ein rök. Þau eru að það muni setja EES-samninginn í algjört uppnám ef málinu verði hafnað og engu breyti þótt sú höfnun sé í fullu samræmi við samninginn sjálfan. En það er ekki aðeins svo að slík höfnun sé í samræmi við samninginn sjálfan. Það að hún sé fullkomlega heimil er í raun forsenda þess að samningurinn var gerður og að það var stætt á því að gera hann. Þetta er eins augljóst og verða má. Ef Ísland gæti ekki hafnað tilskipunum frá Brussel og yrði að samþykkja þær þvert gegn vilja þjóðarinnar, þá þýddi það að Ísland hefði flutt löggjafarvald sitt úr landinu.

Allir á Alþingi vissu, þeir sem samþykktu: Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur. Þeir sem sátu hjá: Sjö þingmenn Framsóknarflokksins undir forystu varaformannsins Halldórs Ásgrímssonar, þeir sem sögðu nei, átta þingmenn Framsóknarflokks undir forystu formannsins Steingríms Hermannssonar og allir þingmenn Alþýðubandalags og Kvennalista, að hefði Ísland ekki virkt neitunarvald gagnvart tilskipunum og réði því eitt hvort þær yrðu leiddar í lög eða ekki, þá hefði löggjafarvald landsins verið flutt úr landi. Meira að segja vitlausustu gervikennimenn í lögfræði í HR gætu ekki haldið því fram að slíkt stæðist stjórnarskrá. Gerðu þeir það ættu þeir að hefja lagakennslu í Grænuborg, en hætt er þó við því að jafnvel óvitarnir þar myndu horfa á slíka furðu lostnir. Það voru jú börnin sem könnuðust fyrst við að keisarinn var klæðalaus.
Það er forvitnilegt að lesa hvernig snillingurinn A.E. Pritchard lýsir Evrópusambandinu og lítt sýnilegri snertingu þess við lýðræðið sem það á svo grátlega litla samleið með. Ekki er þó líklegt að þeir sem eru að svíkja sjálfa sig, flokkinn sinn og mikinn meirihluta hans þessa dagana muni hafa fyrir því.

En kannski munu þeir láta launaða spunameistara, launaða af ríkinu, taka saman fyrir sig talpunkta, einungis til útúrsnúninga, til að halda sér á floti í fáeinar vikur.

Allt er þetta þyngra en tárum tekur.
Trúverðugleikinn fer og þar með flest.
Það kennir Icesave.
Lexían ljóta.“

Nánar í Mbl þ. 1. september 2019

Deila þessu: