Hver ber ábyrgð á 3. orkupakka ESB?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður og f.v. forsætisráðherra

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hvetur Sjálfstæðismenn til að taka upp „sjálfstæðisstefnuna“ í orkupakkamálinu og standa vörð um fullveldið.

Þetta kemur fram í hugleiðingu sem Sigmundur birtir á Facebook-síðu sinni. Tilefnið er fundur sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt um þriðja orkupakkann og fleira í Valhöll fyrr í dag.

„Maður hefði haldið að formaður Sjálfstæðisflokksins, sá ágæti maður, myndi boða eitthvað nýtt í orkupakkamálinu fyrst blásið var til opins fundar í Valhöll,“ skrifar Sigmundur. „Í staðinn flutti hann gömlu línuna um að orkupakkinn hafi þegar verið orðinn til þegar ég var í ríkisstjórn. Jú pakkinn hafði lengi verið til en samt innleiddum við hann ekki. Auk þess heyrði málið ekki undir mig, ekki frekar en fjármálaráðherra á þeim tíma (hver sem það nú var). Málið heyrði hins vegar undir ráðherra Sjálfstæðisflokksins en ekki ætla ég að gagnrýna þann góða ráðherra enda innleiddi hann ekki orkupakkann.“

Eins og Stundin fjallaði um í vor átti ríkisstjórn Sigmundar Davíðs frumkvæði að því árið 2014 að reglur úr þriðja orkupakkanum voru innleiddar í íslensk lög án þess að þær hefðu verið samþykktar í sameiginlegu EES-nefndinni og teknar upp í EES-samninginn. Sumum þótti þetta óþarfa óðagot og eðlilegra að bíða með innleiðinguna en Sigmundur var á meðal þeirra sem greiddu atkvæði með frumvarpinu þann 28. maí 2015 – fyrsta lagafrumvarpinu sem samþykkt var vegna innleiðingar þriðja orkupakkans. Um er að ræða 22. gr. tilskipunar nr. 2009/72/EB um kerfisáætlun flutningsfyrirtækja.  „Markmiðið með því ákvæði tilskipunarinnar er að stuðla að betri tengingu innri markaðarins þannig að raforkuþörf hans verði betur mætt með ásættanlegu afhendingaröryggi,“ segir í greinargerð stjórnarfrumvarpsins sem Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra lagði fram árið 2014 og Sigmundur Davíð studdi. Með frumvarpinu var lögfest að gerð kerfisáætlunar skyldi meðal annars byggja á sviðsmyndum um þróun raforkuflutnings til annarra landa. Við þinglega meðferð málsins var lagt til að sú vísun yrði felld brott en Sigmundur og tveir aðrir þingmenn sem nú tilheyra Miðflokknum, þeir Gunnar Bragi Sveinsson og Þorsteinn Sæmundsson, greiddu atkvæði gegn þeirri tillögu.  

Nánar á vefsíðu Stundarinnar þ. 10. ágúst 2019

Deila þessu: