mbl.is – Vegið að grunnstoðum EES-samn­ings­ins

Í frétt mbl.is 12. febrúar 2018 er vakin athygli á ummælum Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í umræðum á Alþingi á þriðju­dag­inn í síðustu viku

„Mér finnst orðið tíma­bært að við tök­um það til al­var­legr­ar skoðunar á þing­inu hver staða EFTA-ríkj­anna sé á grund­velli EES-samn­ings­ins þegar slík­ar kröf­ur eru gerðar af hálfu Evr­ópu­sam­bands­ins. Mjög fljótt á litið sýn­ist mér að það séu í raun og veru ekki kröf­ur sem sam­rýmast grunn­hugs­un EES-sam­starfs­ins.“

Bjarni sagði þetta al­var­legt mál þar sem að þar væri í raun og veru vegið að grunnstoðum EES-samn­ings­ins, hinu svo­kallaða tveggja stoða kerfi, en kerfið fel­ur í sér að EFTA/​EES-rík­in Ísland, Nor­eg­ur og Liechten­stein heyra und­ir EFTA-dóm­stól­inn og Eft­ir­lits­stofn­un EFTA við fram­kvæmd samn­ings­ins en ekki stofn­an­ir Evr­ópu­sam­bands­ins.

Bjarni sagði einnig

„í hverju mál­inu á eft­ir öðru, það er nán­ast orðinn ár­leg­ur viðburður, að Evr­ópu­sam­bandið krefst þess þegar við tök­um upp Evr­ópu­gerðir, til­skip­an­ir eða reglu­gerðir, að við Íslend­ing­ar fell­um okk­ur við að sæta boðvaldi, úr­slita­valdi, sekt­ar­ákvörðunum eða með öðrum hætti skip­un­um frá alþjóðastofn­un­um sem Evr­ópu­sam­bandið hef­ur komið sér upp en við eig­um enga aðild að.“

„Ég verð var við það í hverju mál­inu á eft­ir öðru að ákveðin þróun á sér stað sem við verðum að bregðast við. Mér finnst ut­an­rík­isþjón­ust­an og ein­stök fagráðuneyti hafa staðið sig ágæt­lega í því að spyrna við fót­um og fara fram á sér­stak­ar lausn­ir en við sjá­um aukna tregðu Evr­ópu­sam­bands­meg­in og kannski vax­andi eft­ir Brex­it [út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu], þar sem all­ir verða að falla í sama mótið og eng­ar und­anþágur eru samþykkt­ar. Menn fara ein­fald­lega aft­ast í röðina ef þeir fara fram á sér­lausn­ir.“

Fréttin á mbl.is 

Deila þessu: