Segjum nei við öllum orkupökkum, nei við Evrópusambandinu og nei við alþjóðavæðingunni.

Ása Hlín Benediktsdóttir

Ása Hlín Benediktsdóttir:
„Ég er á móti þriðja orkupakkanum einfaldlega vegna þess að ég tel að með honum sé verið að færa okkur enn einu skrefinu nær því að selja orku úr landi og rígbinda okkur enn frekar á klafa evrópska reglubáknsins og alþjóðavæðingarinnar. Þriðji orkupakkinn er bara enn ein birtingarmynd þess að við séum að gangast alþjóðavæðingunni á hönd og þá ekki bara sem hugmyndafræði heldur með bindandi samningum.“

Lesa áfram „Segjum nei við öllum orkupökkum, nei við Evrópusambandinu og nei við alþjóðavæðingunni.“

Miðinn helmingi lægri út þessa viku

Ef að líkum lætur afgreiðir þingið orkupakkann eftir rétt tæpan hálfan mánuð. Af því tilefni efnum við til síðasta söfnunarátaks okkar. Ætlunin er að ráðstafa því sem safnast í auglýsingar í því skyni að koma málstað okkar til allra kjósenda.

Frá mánaðarmótum höfum við boðið þeim, sem styrkja okkur um 2.000,- krónur, eins konar kvittun fyrir styrknum í formi límmiða í bíla. Í tilefni þess að það er menningarnótt um næstu helgi höfum við ákveðið lækka þetta styrktarframlag um helming. Miðinn fæst gegn 1.000,- króna framlagi út þessa viku.

Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi; vakið athygli á málstaðnum og styrkt samtökin í leðinni

Pantaðu miða á orkanokkar@gmail.com Ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðisins skaltu láta fylgja nafn greiðanda og heimilisfang þannig að við getum póstsent miðann. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu geta sótt miðana á tvo staði í Reykjavík einnig er möguleiki á að fá miðann keyrðan út.

Rétt er að minna á reikningsupplýsingar okkar sem eru að finna undir: Styrktu starfið

Við erum bara „aftanívagn“ 17 sinnum fjölmennara ríkis ESB

Ragnar Önundarson f.v. bankastjóri

Ragnar Önundarson skrifar:
„Almenningur vill njóta þeirrar ódýru, hreinu orku sem henni hefur verið lofað í tengslum við sérhverja nýja virkjun, árum og áratugum saman. Samt samþykkti Ísland 2.OP 2003, þ.e. að koma á „markaðsbúskap“ í orkuframleiðslu og að rafmagn skuli vera „vara“, háð fjórfrelsinu. Almenningur gerði sér ekki grein fyrir hvert var verið að leiða þjóðina. Í mikilvægustu málum okkar verðum við að móta okkar eigin stefnu, að loknum ítarlegum umræðum og fenginni bærilegri sátt. Þetta er afleiðing þess að við lofuðum ESB að elta löggjöf þess nánast í blindni.“

Lesa áfram „Við erum bara „aftanívagn“ 17 sinnum fjölmennara ríkis ESB“

12.000 dreifildi farin í dreifingu

Það eru margar ástæður til að segja nei við orkupakkanum sem stendur til að afgreiða nú um næstu mánaðamót á svokölluðum þingstubbi sem hefst þann 28. ágúst næst komandi. Síðastliðinn fimmtudag birtist heilsíðuauglýsing í Morgunblaðinu með 10 góðum ástæðum til að hafna pakkanum.

Dreifildi sem bíða dreifingar

Ástæðurnar 10 eru komnar á dreifildi sem var byrjað að dreifa um nýliðna helgi. Dreifingunni er haldið uppi af sjálfboðaliðum sem skipuleggja dreifinguna í sérstökum hópi orkuliða á Facebook. Hópurinn kallar sig Orkan okkar: Orkuliðið. Þeir sem hafa tíma og tækifæri til að leggja okkur lið er velkomið að sækja um inngöngu í hópinn og taka þátt í dreifingunni.

Nú þegar er búið að dreifa í kringum 7.000 dreifildum en alls 12.000 eru farin út til sjálfboðaliða sem munu annast dreifingu þeirra. Fram að þessu hefur dreifingin eingöngu verið bundin við höfuðborgarsvæðið en þrjár sendingar fóru á pósthúsið nú í morgun. Miðað við áfangastaðina er útlit fyrir að íbúar á Norðurlandi vestra séu mjög áhugasamir fyrir því að upplýsa nábúa sína um neikvæðar afleiðingar af innleiðingu orkulaggjafar ESB.

Smelltu hér til að skoða dreifildið

Er fjórði orkupakki ESB „bara eðlilegt framhald af þeim þriðja“?

Óli Björn Kárason alþingismáður

Óli Björn Kára­son alþing­ismaður fékk í liðinni viku langt svar frá ut­an­rík­is­ráðherra við fyr­ir­spurn í fjór­tán liðum um orkupakka og tengd mál. Síðasta svarið vek­ur at­hygli, ekki síst vegna þess að svarið sár­vantaði.
Óli Björn spurði: „Hafa EFTA-lönd­in komið að und­ir­bún­ingi fjórða orkupakka ESB sem nú er unnið að? Hvaða sjón­ar­miðum hafa ís­lensk stjórn­völd komið þar á fram­færi? Hvaða meg­in­breyt­ing­ar kunna að verða á reglu­verki orku­markaðar­ins þegar og ef fjórði orkupakk­inn verður inn­leidd­ur?“

Lesa áfram „Er fjórði orkupakki ESB „bara eðlilegt framhald af þeim þriðja“?“