„Við þurf­um að segja nei við þriðja orkupakk­an­um til að verja EES-sam­starfið.“

Frosti Sigurjónsson
f.v. alþingismaður

Frosti Sigurjónsson:
„Ut­an­rík­is­ráðherra Íslands og fleiri gefa í skyn að segi Alþingi nei við orkupakk­an­um þá muni EES-samn­ing­ur­inn vera í hættu en því er öf­ugt farið. Við þurf­um ein­mitt að segja nei við þriðja orkupakk­an­um til að verja EES-sam­starfið.
Í 25 ár hafa aðild­ar­ríki haft heim­ild skv. EES-samn­ingn­um til að hafna lög­gjöf og laga­breyt­ing­um frá ESB. Í 102. gr. samn­ings­ins er fjallað um hvernig skuli þá bregðast við. Sam­eig­in­lega EES-nefnd­in skal þá „gera sitt ýtr­asta til að finna lausn sem aðilar geta sætt sig við“. Skyn­sam­leg lausn gæti fal­ist í því að Ísland yrði und­anþegið orkupakk­an­um enda er Ísland ekki tengt orku­markaði ESB.“

Nánar í Mbl. 4. maí 2019

Deila þessu: