Frétt mbl.is 20. mars 2019
„Þingflokkarnir voru meðal annars að ræða þriðja orkupakkann og tengd mál. Ég og Þórdís Kolbrún [R. Gylfadóttir, iðnaðarráðherra] vorum að fara yfir þau mál með þingflokkunum þrem,“ útskýrir Guðlaugur.
Spurður um hvað felist í málum sem hann segir tengjast orkupakkanum, segist ráðherrann ekki getað upplýst á þessu stigi nákvæmlega hvert eðli þeirra mála sé.
„Við tókum þessari gagnrýni sem kom fram mjög alvarlega og við höfum verið að nýta tímann til þess að skoða þau mál og meta það. Á þessu stigi er ekki mikið meira um það að segja, annað en það að við frestuðum málinu og höfum verið að skoða það í kjölinn meðal annars með þeim sem hafa gagnrýnt það harðast,“ útskýrir Guðlaugur.